• Bjarki Sigurðsson gengin til liðs við Suzuki
    Bjarki Sigurðsson gengin til liðs við Suzuki Hann Bjarki Sigurðsson sem hefur verið ökumaður Honda síðan ég veit ekki hvenær hefur ákveðið að ganga til liðs við Suzuki fyrir næsta ár.  Bjarki er í dag einn af okkar bestu ökumönnum í motocrossi og enduro og er þetta mikill liðstyrkur fyrir Suzuki og jafnframt töluverður missir fyrir Honda.  Ekki náði ég að…
  • Christophe Pourcel að ganga til liðs við Chad Reed - 22 Motorsports?
    Christophe Pourcel að ganga til liðs við Chad Reed - 22 Motorsports? Flestir sem fylgjast með sportinu vita hver Christophe Pourcel er, en þessi ungi fransmaður var að margra mati talinn sá aðili sem hefði átt að vinna AMA Outdoors titilinn sumarið 2009 en vegna bilana í Southwick að þá missti hann Ryan Dungey framúr sér og svo fór sem fór.  Hann var mjög nálægt því að…

Heyrst hefur...

  • ... að Einar Sigurðsson, bróðir Bjarka, sé hryggbrotinn og verði ekkert með í sumar
  • ... að því fer fjarri að pabbi Max Anstie hafi lent í slagsmálum við aðdáendur Joel Roelants því hann var á búgarði sínum í USA á sama tíma og keppnin fór fram í Búlgaríu sem þýðir að það er ekki heldur búið að reka Max Anstie úr liðinu
  • ... að Max Anstie hafi átt að hafa verið rekinn frá liði sínu vegna slagsmála pabba hans við aðdáendur Joel Roelants
  • ... að pabbi Max Anstie eigi að hafa lent í slagsmálum við nokkra aðdáendur Joel Roelants eftir viðeign þeirra tveggja í síðari moto-inu í FIM MX GP-inu um síðustu helgi
  • ... að Steven Frossard verði með á Ítalíu um helgina í þriðju umferð FIM MX GP eftir að hafa farið í aðgerð á hné á mánudaginn
  • ... að Ken Roczen verði ekki með um helgina í Salt Lake City í 450 flokknum í AMA Supercrossinu þar sem hann er komin á fullt í undirbúningu fyrir AMA Outddoors
  • ... að lið Larry Brooks og Jeremy McGrath hafi loksins landað styrktaraðili eftir sigurs Andrew Short í Seattle um síðustu helgi
  • ... að James Stewart sé á leið til MotoConcept Suzuki sem yrði, ef rétt, saga til næsta bæjar því þar eru fyrir Alessi bræðurnir með hin snarvitlausa föður Tony Alessi
  • ... að vefmiðlar ytra bjuggust við formlegri tilkynningu um viðskilnað James Stewart og JGR síðasta fimmtudag en ekkert hefur bólað á henni
  • ... að orðrómur um brotthvarf James Stewart frá JGR lifir ennþá góðu lífi og ef eitthvað er, fer vaxandi
  • ... að undirbúningur fyrir liðs Íslands fyrir ISDE 2012 sé hafin og eiga allir að setja "like" á síðu þeirra á fésinu
  • ... að enn sé ekki búið að moða keppnisdagskrá MSÍ og enn sé óljóst hvort það verði sex MX keppnir eða fimm og stóra spurningin um fjórðu endurokeppnina
  • ... að Sveppagreifinn og Aron #66 horfi vonaraugum til Vestmanneyja þar sem brautin þar er klár í slaginn
  • ... að Jói Kef sé að stefna á að keppa í FIM mótaröðinni og fara í öldungardeildina
  • ... að Binni Morgan sé búinn að kaupa þrjú hjól handa syni sínum og stefni á að taka "taugatrekkta Ítalann" á hliðalínum brauta á næstunni
  • ... að Reynir sé búinn að setja takmarkið að komast á MXON 2012
  • ... að Reynir Jónsson æfi nú eins og vitlleysingur þessa dagana og sést hefur hjá honum í boxsölum borgarinnar þar sem hann lemur púða eins og hann eigi lífið að leysa.  Spurning um að lána honum nokkra stjórnmálamenn og stjórnendur lífeyrissjóða til að æfa sig á
  • ... að Reynir Jónsson ætli sér að vera með stóra "come back-ið" í ár
  • ... að Ryan Sipes sé handleggsbrotinn eftir að hann krassaði í gær og fór úr axlarlið.  Verður hann frá í 6 vikur í það minnsta
  • ... að Eli Tomac muni að öllum líkindum taka stöðu Trey Canard hjá Honda í 450 flokknum og keyra á meðan West Lites flokkurinn er í fríi