Nú um helgina fór fram síðasta umferðin í AMA Supercrossinu og fór hún að venju í Las Vegas.  Þetta keppnistímabil hefur verið fyrir margar sakir sögulegt og þá fyrst og fremst fyrir meiðsli margra topp ökumanna í sportinu og endaði tímabilið meira segja á því að nýkrýndur meistari Ryan Villopoto meiddist og verður ekki meira með í ár...  Já, listi yfir ökumenn sem meiðst hafa er langur og hafa margar spekúlasjónir komið fram afhverju, sumir kenna brautum um, aðrir hjólum (450 hjólum) og en aðrir harðandi samkeppni en þegar allt er á botninn hvolft að þá virðist þetta bara vera eitt af þessum tímabilum sem hefur verið skrýtið í marga staði.  Chad Reed var spurður út í þetta og hann vildi ekki meina það að um harðnandi samkeppni væri um að ræða, menn hefði alveg eins viljað vinna keppnina í fyrra eins og í ár.  Hjólin væri betri en nokkru sinni fyrr og brautirnar væru betri en tæknilegri.  Hans mat var, þetta var bara skrýtið tímabil, "nothing more, nothing less"...  Margir ökumenn reyndu þó að hjóla hálflaskaðir í keppninni um helgina og má þar meðal annars nefna Kevin Windham sem varð að hætta við þar sem hann er ekki orðin góður.  Dean Wilson ákvað að vera með þrátt fyrir að hann þarf að fara í aðgerð á öxl en þulirnir vildu meina að það væri vegna þess að samningur Dean Wilson rennur út í ár og þarf hann sárlega á nýjum samning að halda áður en sumarið er á enda.

Eitt hefur þó vakið athygli í ár og það er að mun færri einstaklingar sem voru á eigin vegum, það sem er kallaður "privater" mættu til keppni í ár en undanfarin ár og í lok tímabils var þetta orðið þannig að allir sem skráðu sig komust að í undanriðla og er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í mörg herrans ár.  Þetta þýðir að nýliðun er orðin mun minni í sportinu og að þeir sem hafa þurft að borga brúsann úr eigin vasa sá ekki tilgang í þessu lengur og hætt því við þátttöku.  Í framhaldi af því hafa vaknað upp umræður hvort að keppnirnar væru einfaldlega of margar og álagið of mikið ásamt kostnaði við þátttöku.  Einhverjir vilja fækka umferðum úr 17 í 14 í supercrossinu og einnig fækka umferðum í AMA Outdoors.  En þegar allt er á botning hvolft að þá eru það ekki ökumenn og fólkt þeim tengt sem tekur þessa ákvörðun heldur hagsmunaðilar sem t.d. halda keppnirnar því þeir munu missa spón úr sínum rassi.

En víkjum aftur að keppninni um helgina.  Ég mun ekkert fjalla um úrslit né stöður, nenni því hreinlega ekki lengur þar sem mér hefur fundist þetta tímabil ekkert sérstaklega spennandi.  En hér getur þú séð keppnina af YouTube í fínum gæðum, þannig að þú þarft ekki að ná þér í hana sem torrent skrá.  Er þetta öll keppnin, með undanriðlum og öllu.  

Að lokum vill ég þó segja þetta, "bring on the outdoors" og megi það vera meira spennandi en supercrossið.

Published in Supercross
Monday, 30 April 2012 16:34

AMA Supercross Salt Lake City

Um síðustu helgi fór fram næstsíðasta umferðin í AMA Supercrossinu.  Nenni hreinlega ekkert að skrifa um þessa keppni að svo stöddu og hlakka til að sjá ökumenn stilla sér upp fyrir fyrstu umferðina í AMA Outdoors sem fer fram í Hangtown.  Ef þú átt eftir að horfa á keppnina, að þá geturðu séð hana hér fyrir neðan í ágætis gæðum af YouTube og því óþarfi að niðurhjala því niður af netinu sem torrent skrá.  Er þetta keppnin með öllum undanriðlum ásamt aðalkeppninni í bæði 250 og 450.

Published in Supercross

Það var heldur betur gaman að fylgjast með fimmtándu umferðinni í AMA Supercrossinu sem fór fram í Seattle um helgina og get ég ekki annað en sagt, "loksins, loksins" þar sem síðustu umferðir hafa verið frekar daprar að mínu mati og hef ég varlan nennt að fjalla um þær af þeim sökum.  En þökk sé West Lites ökumönnunum, að þá var þessi keppni afar skemmtileg áhorfs.  Ef þú ert ekki búinn að horfa á hana, að þá geturðu sé hana hér fyrir neðan og er þetta öll keppnin, bæði undanriðlar og aðalkeppnin í fínum gæðum.  Þar fyrir neðan má sjá atvikin sem héldu manni vakandi í Lites flokknum.

Stigabaráttan í West Lites er engan veginn lokið og eftir úrslit dagsins, að þá er ljóst að Eli Tomac og Dean Wilson eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar til að hreppa titilinn.  Eli Tomac var ekki hrifinn af aksturslaginu og sagðist ekki vilja keyra né keppa svona en ef þetta væri það sem þurfti að gera til að vinna, að þá myndi hann gera það og sérstaklega ef þeir sem eru hans helstu keppinautar koma með það að markmiði að taka hann út.  Þar með er ljóst að síðasta keppnin verður hreint stríð á milli hans og Dean Wilson og ef þú hefur horft á atvikið hér fyrir ofan, að þá skilurðu afhverju.  Það var þó vinur minn Ryan Sipes sem vann í fyrsta sinn í ár og var það kær kominn sigur í ljósi þess að hann var að keppa í fyrsta sinn eftir mjög erfið meiðsl og hafði aðeins hjólað í tæpar þrjár vikur.  Já, loksins small þetta hjá honum og ekki skemmdi það fyrir honum að Eli Tomac og Dean Wilson enduðu að hugsa meira um hvorn annan en að sigra Ryan Sipes.  Marvin Musquin varð annar eftir að hann hafði náð fram úr Eli Tomac sem var fastur með hjólið í þriðja gír eftir samstuð sitt við Dean Wilson en hann náði því svo niður í annan en engu að síður ekkert grín að geta ekki gírað upp eða niður og verða úrslitin hjá honum því að teljast ásættanleg en hann endaði þriðji.  Dean Wilson endaði sjötti og er meiddur á öxl eftir viðskipti sín við Eli Tomac og nú er bara spurning hvernig kappinn verður fyrir næstu umferð sem fer fram í Salt Lake City og eins og ég sagði að þá verður það hrein úrslita viðureign sem við því miður munum ekki geta séð beint þar sem það verður engin útsending frá þeirri keppni.  

Í 450 flokknum sigraði Andrew Short loksins sínu fyrstu keppni í stóra flokknum og í raun var þetta hans fyrsti sigur í supercrossinu síðan 2006...  Já, ég hef sjaldan séð jafn mikla gleði hjá einum ökumanni eins og hjá honum sem var einnig að koma til baka eftir meiðsli og var búinn að missa af átta keppnum í röð.  Glæsilegt hjá kappanum og frábært að hann skyldi loksins ná að klára dæmið.  Góðvinur hans Ken Roczen varð annar og skiptust þeir á tímabili á forystu en Andrew Short hafði betur og keyrði betur þegar leið á seinni hlutann á keppninni.  Jake Weimer varð þriðji og var mjög sáttur að lenda á palli þar sem hann var að ströggla á æfingum.  Því miður að þá meiddist Ryan Villopoto á hné og varð að hætta keppni.  Er þetta í fyrsta skipti í ár sem hann nær ekki að ljúka keppni og því miður þurfti það að enda á þann hátt að hann slasaðist.  Er þetta sama hné og hann hefur verið að díla við síðustu ár og nú er spurning hvaða áhrif það hefur á hann fyrir síðustu umferð og þá einnig utanhús undirbúninginn.  Vonandi er þetta ekki alvarlegt.

Published in Supercross

Ryan Dyngey verður EKKI með um helgina í AMA supercrossinu sem á að fara fram í Daytona.  Þetta er reiðarslag fyrir Ryan Dungey sem er í öðru sæti til meistara og er um 13 stigum á eftir Ryan Villopoto.  Ryan Dungey þurfti að fara í skurðaðgerð til að láta laga viðbein sem var brotið eftir að hann datt við æfingar í vikunni.  Þar með eru bæði Ryan Dungey og Chad Reed, helstu keppinautar Ryan Villopoto úr leik og nú er bara James Stewart eftir af stóru nöfnunum og nú vona ég að kappinn nái þokkalegri ræsingu og þeir tveir muni þá keppa "head to head" það sem eftir lifir af þessum keppnistímabili.

Published in Supercross

Um helgina fór fram níunda umfeðrin í AMA Supercrossi og fór hún fram í St. Louis.  Margir bíða með ofvænni eftir keppninni sem fer fram í St. Louis þar sem jarðvegurinn sem notaður er á að heita að vera einstakur hvað drullumallara varðar og þykir með afbrigðum góður.  Ég er einn af þeim sem gerði slíkt en ég verð eiginlega að segja að þessi keppni var eiginlega með þeim leiðinlegri í ár og varð ég fyrir miklum vonbrigðum.  Alla vega var ekki þess virði að vaka eftir henni.  Þetta var einhvern allt ráðið nánast eftir startið og síðan voru menn í tómri halarófu það sem eftir lifði kvöldsins áhorfendum til mikillar gleði eða þannig, alla vega hvað aðalkeppnina varðar.  Undanriðlarnir voru ágætir.  Það var einn og einn sem var að gera eitthvað og taka framúr en þar fyrir utan, mjög bragðlítil keppni og greinilegt að fjarvera Chad Reed er farin að sjást í opna flokknum.  Ég ætla nú ekki alveg að eyðileggja áhugann fyrir þeim sem eiga eftir að horfa á keppnina en hægt er að horfa á hana hér fyrir neðan.  En persónulega hefur mér fundist aðeins fjara undan supercrossinu í ár og er það ekki eins spennandi og í fyrra.  Kannski eru væntingar mínar hreinlega of miklar í dag en mér finnst ekkert óeðlilegt að maður sé með væntingar þegar maður lítur á listann yfir ökumenn.  Þetta er ÖLL keppnin, bæði lites og 450 flokkurinn.

Þar sem mér fannst þetta ekki neitt sérstaklega spennandi keppni, að þá verður fjallað um úrslitinn í mjög stuttu máli.  Þau voru einfaldlega þannig að Justin Barcia tók anstæðinga sína í nefið og þurfa aðrir að fara að fá smá sinnep til að sprauta upp í óæðri endann á sér til að fara að eiga einhvern séns í kappann.  Ken Roczen varð annar og Blake Wharton komst í fyrsta sinn á pall eftir mistök Justin Bogle sem var í rassgatinu á Ken Roczen fram á síðasta hring þegar hann gerir mistök og lýtur í gras.  Það var eiginlega það mest spennandi í aðakeppninni í Lites flokknum.  Í stóra flokknum að þá var það Davi Millsaps sem var með bestu ræsingu, Ryan Villopoto fór nánast strax fram úr og sagði bless.  James Stewart var með hrikalega lélega ræsingu og lenti svo í því að lenta strax í samstuði og féll við það.  Þar með var þetta hefðubundið kvöld að hætti James Stewart fyrir utan að nú keyrði kappinn sig upp og endaði í fjórða sæti en þetta tímabil er gjörsamlega búið hvað James Stewart varðar og mun ekkert breytast nema ef Ryan Villopoto fer í einhverja frumskógarferð með tilheyrandi tjóni.  Ryan Dungey hangir í sínu og keyrir svo sem ágætlega en er ekki eins góður og Ryan Villopoto og endaði hann í öðru sæti.  Justin Brayton skilaði sér í fyrsta sinn á pall í ár og verður það að teljast gott hjá kappanum sem er verulega laskaður eftir fall fljótlega í upphafi tímabils þar sem hann lenti mjög illa.

Þá er þessari upptalningu lokið og fátt um fína drætti að mínu mati.  Svona eftir á að hyggja að þá er ég líklegast of dómharður en mér fannst þessi keppni einfaldlega aldrei spennandi og eftir að Justin Barcia eða Ryan Villopoto voru orðnir fremstir að þá var þetta nánast bara ein halarófa fyrir utan James Stewart og Blake Wharton sem voru að gera eitthvað af viti.  Ég er þannig að ég vill fá baráttu á milli efstu manna og það vantar pínu blóðbragð í þetta dæmi við fráhvarf Chad Reed. 

Published in Supercross
Thursday, 01 March 2012 21:56

Umdeilda atvikið í Atlanta um helgina

Umdeilt atvik átti sér stað í síðustu umferð í AMA Supercrossinu sem fór fram í Atlanta um síðustu helgi.  Já, ég ætla mér ekki að glósa um sjálfa keppnina enda vita flestir sem það vilja hvernig keppnin fór og ég hef verið latur við síðuna upp á síðkastið.  Atvikið sem ég ætla að tala um er þegar Ryan Villopoto stekkur þrefalt, þrefalt þrátt fyrir að rauð ljós loga og flaggari veifar eins og hann eigi lífið að leysa þegar vel er liðið á keppnina á meðan andstæðingar hans, bæði Ryan Dungey og James Stewart hægja á sér við þessar aðstæður og taka einfalt á þessum kafla eins og reglur gera ráð fyrir skv. AMA.  Á þessum kafla dró Ryan Villopoto hvað mest á Ryan Dungey, þ.e. við þetta atvik og aftur dró í sundur með James Stewart og Ryan Villopto, en  James Stewart hafði verulega sótt á bæði Ryan Dungey og Ryan Villopoto og var farinn að nálgast hann Ryan Villopoto ískyggilega.  Atvikið sem um ræðir er þegar ökumaður fellur og þarf á aðstoð að halda út í braut.  Við slíkar aðstæður eins og í þeim rythma kafla eins og við erum að tala um í Atlanta, að þá eru rauð viðvörunarljós sem kvikna og einnig er flaggari fyrir framan svæðið sem veifar svo sannarlega til að vekja athygli á hættunni.   Reglan er að ökumaður sem kemur að slíkum kafla eftir að ljósin hafa verið kveikt og flaggari stígur fram til að veifa framan í ökumann, að þá á hann skilyrðislaust að hægja á sér og honum ber að stökkva eingöngu einfalt stökk og er þar með öllu óheimilt að stökkva tvöfalt eða þrefalt á þessum stað til þess að stofna ekki starfsmönnum sem og þeim sem þarfnast aðhlynnigar í óþarfa hættu. 

Atvikið var kært og kom til kasta AMA og að einhverjum óskiljanlegum ástæðum sáu þeir ekki ástæðu til þess að refsa Ryan Villopoto þó svo að það er mjög augljóst að hann virðir ekki reglur í þessu tilviki.  Erfitt er um það að segja hvað hefði gerst ef umrædd atvik hefði ekki átt sér stað og hugsanlega hefðum við séð James Stewart berjast við Ryan Villopto en það er alltaf auðvelt að segja hugsanlega og líklegast er niðurstaðan sú að þetta hefði ekki breytt neinu um endanleg úrslit.  En engu að síður að þá hefur AMA undantekingarlaust refsað ökumönnum við þessar aðstæður og hafa minni menn verið settir í pitt í 5 sekúndur og fengið peningasektir.  Ekkert slíkt var gert í þessu tilviki og verð ég að segja að eftir að hafa horft á þetta myndband hér fyrir neðan sem sýnir vel hvernig þetta lítur yfir fyrir ökumann að nálgast þetta, að þá þykir mér það undrum sæta að hann skuli ekki hafa í það minnsta hlotið peningasekt.  Myndbandið er úr GoPro vél James Stewart, sem er á mjög svipuðum hraða og Ryan Villopto, þannig að ekki verður hægt að segja að Ryan Villpoto hafi farið svo hratt að hann hefði ekki tekið eftir þessu.  Ökumönnum er kennt frá blautu barnsbeini að horfa fram fyrir sig, þangað sem þeir eru að fara, og ef aðrir tóku eftir þessu að þá hefði Ryan Villopoto átt að taka eftir þessu.  En dæmi hver fyrir sig og erfitt er að fullyrða að hann hefði viljandi tekið sénsinn og ef svo er, að þá hagnaðist hann á því í þessu tilviki.  Hægt er að sjá þetta þegar um 4:18 er liðnar af myndbandinu.

 

Published in Supercross

Í nótt fór fram sjöunda umferðin í AMA Supercrossinu og fór hún fram í Dallas.  Dallas markar ákveðin þáttaskil í supercrossinu því þá fer West Lites flokkurinn í frí og East Lites hefur keppni.  Líklegast verða fáir jafn fegnir þessari hvíld í West Lites eins og Eli Tomac sem tók mjög góða dýfu í síðustu keppni og meiddist nokkuð illa á olnboga.  Nú hefur hann um sex umferðir til að jafna sig.  Margir hafa beðið spenntir eftir áttundu umferðinni og innkomu East Lites flokksins því ólíkt því sem verið hefur hér áður að þá hefur East Lites flokkurinn verið sá flokkur sem hefur verið meira spennandi síðustu ár.  Má þakka því mikið ökumönnum eins og Justin Barcia sem vekur alltaf athygli fyrir mjög svo agressíva ökulag og hversu blygðunarlaust hann notar aðra keppendur sem barta í því skyni að ná framúr.  Annað sem þykir spennandi er að sjá þýska undrabarnið Ken Roczen í baráttu við Justin Barcia og hvernig Justin Barcia myndi taka á honum þegar á hólminn væri komið.  Í 450 flokknum að þá var ljóst eftir síðustu keppni að baráttan virtist vera orðin á milli Ryan Villopoto og Chad Reed þar sem James Stewart hefur mistekist að áætlunarverk sitt að vera með þeim fremstu í öllum keppnum.  Ryan Dungey, sem er kallaður "herra stöðugleiki", hefur ekki verið með sama hraða og á Suzuki í fyrra og ekki blandað sér jafn fljótt í baráttu efstu manni í hverri keppni.  Í raun má segja að Ryan Dungey hefur verið pínu heppin yfir óförum annara og þá sérstaklega James Stewart, en hann hefur iðulega hagnast af því.  En það verður ekki af honum tekið að hann er afar skynsamur ökumaður og líklegast er hann einfaldlega að keyra sig upp á meðan hann er ennþá að læra á hjólið, þ.e. hreyfingarnar því það er munur á hjólum frá Austurríki og Japan.  En víkjum aftur að keppninni en ef þú vilt ekki vita meir, að þá skaltu ekki lesa lengra.

Lites flokkurinn:  Þessi flokkur stóð svo sannarlega undir nafni í nótt og varð maður svo sannarlega ekki yfir vonbrigðum með aksturslag og keppnisskap þessara drengja.  Keppnin var í alla staði mjög spennandi og alltaf eitthvað um að vera.  Eitthvað sem maður saknar stundum í 450 flokknum þar sem sumir ökumenn virðast "settle in" og sætta sig við sitt hlutskipti og rembast við að halda því.  Í fyrri undanriðlinum var það Ken Roczen sem sýndi mikinn hraða og kláraði riðilinn mjög sannfærandi.  Kom það mér nokkuð á óvart hversu auðveldlega hann tók Blake Baggett sem er í Pro Circuit liðinu og er þetta í fyrsta sinn sem ég sé lið Mitch Payton strita jafnmikið án þess að ná tilætluðum árangri.  Blake Baggett varð þó annar og Kyle Cunningham varð þriðji.  Lætin byrjðu þó í seinni riðlinum þegar Justin Barcia sigraði eftir skemmtilega baráttu við Blake Wharton sem þurfti að hafa sig allan við að eiga við Justin Barcia.  En Justin Barcia lætur ekki á sér hæða og allt í einu var Blake Wharton notaður sem barti fyrir ekki bara Justin Barcia, heldur missti hann bæði Darryn Durham og Malcolm Stewart fram úr sér sem notuðu samskonar taktík á hann og Justin Barcia.  Í aðalkeppninni að þá varð það Darryn Durham sem var með bestu ræsingu og á eftir honum komu þeir Justin Bogle, Justin Barcia og Ken Roczen.  Justin Barcia þurfti nokkra hringi til að komast fram úr liðsfélaga sínum Justin Bogle áður en hann hélt á eftir Darryn Durham sem var með forystu.  Ken Roczen var ekki alveg jafn fljótur að ná fram úr Justin Bogle og þurfti að hafa nokkuð fyrir því.  Hann hafði það fyrir rest en í ljósi þeirra úlniðsmeiðsla sem hann varð fyrir í kringum jólin og þreytist hann þar sem hann brotnaði fyrir utan að hann fékk "arm pump" sem líklegast má rekja til að hann hefur ekki hjólið mikið síðustu vikur og er nýlega komin aftur í gang.  Malcolm Stewart sýndi mjög agressíva takta þegar hann reyndi að fara fram úr Justin Bogle sem endaði með því að hann tók þá báða niður.  Varð Justin Bogle hreinlega brjálaður og lamdi með flatri hendinni í hjálm Malcolm Stewart og mjög líklega hefur hann slasað sig nokkuð á fingrum við það högg því hann hélt stöðugt um fingurnar eftir höggið.  Dæmið endaði því þannig að Justin Barcia sigraði eftir smá darraðadans en var samt mjög sannfærandi.  Darryn Durham varð annar eftir fantakeyrslu og ljóst er að hann er að finna sig vel á Kawasaki hjólinu undir stjórn Mitch Payton.  Ken Roczen varð þriðji og var sáttur vegna meiðsla sinna.  Blake Baggett hjá Monster Energy Kawasaki Pro Circuit og Kyle Cunningham hjá DNA Star Valli Motosports náði ekki að ljúka keppni og olli mér miklum vonbrigðum þar sem þeir voru með ágætis hraða í undanriðlunum og æfingum.  

450 flokkurinn:  Það var eiginlega allt eftir bókinni í undanriðlunum í 450 flokknum.  Ryan Villopoto sigraði nokkuð örugglega í sínum riðli og liðsfélagi hans Jake Weimer varð annar og Broc Tickle þriðji.  Þar með var Kawasaki með þrjá efstu menn í fyrsta riðli og er það í fyrsta sinn í langan tíma sem það gerist.  Í síðari riðlinum að þá varð það James Stewart sem sigraði á meðan Chad Reed þurfti að ströggla en vann sig upp í annað sætið.  Kevin Windham varð þriðji og var með eins og venjulega flottan akstur.  Fyrir aðalkeppnina var smá spenna að sjá hvort að framhald yrði á keppninni á milli Ryan Villopoto og Chad Reed frá síðustu umferð og það kom á daginn.  Jeff Alessi, bróðir Mike Alessi, náði bestri ræsingu en það stóð ekki lengi og náði Ryan Villopoto fljótlega forystu og Chad Reed elti hann eins og skugginn.  Þegar hér var komið að þá var það Chad Reed sem greinilega var við stjórn og virtist geta hægt á sér og aukið hraðann að vild og náð Ryan Villopoto hvar og hvenær sem er í brautinni.  Ryan Villopoto virtist ekki vera jafn öruggur og upp á síðkastið og gerði nokkur minniháttar mistök sem ýtti undir aukið sjálfstraust Chad Reed sem virtist vera með þetta í hendi sér hvenær hann myndi fara fram úr.  Það var á fjórða hring sem Chad Reed ákvað að sækja á hann af meiri áfergju en áður og þá kom krassið sem enginn hafði séð fyrir því Chad Reed hafði verið öryggið uppmálað allan daginn.  Chad Reed náði ekki yfir þrefalt stökk og framdekkkið sökk í sandinn sem gerði það að verkum að hann fór fram fyrir sig.  Í sjálfu sér virtist fyrsta dettann ekki vera neitt svaðaleg en fótur Chad Reed festist í hjólinu og tók hann með í annan hring og við það meiddist kappinn og varð því miður úr leik.  Þar með var eftirleikur Ryan Villopoto auðveldur því enginn var á sama hraða á hann eða sótti neitt á hann.  Chad Reed varð hreint út sagt brjálaður út í sjálfan sig og ekki er ennþá komið í ljós hversu alvarleg meiðslin eru en eitt er ljóst að þetta gæti hafa verið úrslitastund í AMA Supercrossinu því Chad Reed var sá eini sem virkilega var "on the box all the time" og var að eiga eitthvað í Ryan Villopoto.  Ryan Dungey átti lélega ræsingu og þurfti virkilega að hafa fyrir hlutunum sem hann og gerði.  Náði hann að keyra sig upp í annað sætið en framan af fannst mér hann langt frá því að vera sannfærandi en þegar á leið, að þá var hann farinn að sýna gamla takta.  Jake Weimer náði aftur á pall og endaði þriðji eftir töluverða baráttu við Ryan Dungey og getur hann ekki annað en verið sáttur miðað við gang mála í síðustu keppni.

James Stewart varð fyrir því óhappi að liðsfélagi hans, Davi Millsaps, datt fyrir framan hann í einni beygjunni og komst James Stewart hvergi framhjá honum og endaði á hjólinu hans.  Við það drap hann á hjólinu og fyrr en varði voru þeir félagarnir tveir orðnir þeir síðustu.  James Stewart keyrði sig þó upp og náði að enda í sjötta sæti og er þetta eiginlega í fyrsta sinn í vetur sem ég sé hann keyra sig upp eftir svona atburð og það eitt og sér er jákvætt því hann lék sér af því í "den".  En hann er samt langt frá því að vera eins agressívur og hann var og mun mikið vatn renna til sjávar áður en við sjáum hann í því formi sem hann var hér áður.  Hér eru svo heildar úrslit í báðum flokkum.

450 flokkurinn:
1. Ryan Villopoto (Kaw)
2. Ryan Dungey (KTM)
3. Jake Weimer (Kaw)
4. Mike Alessi (Suz)
5. Josh Hansen (Kaw)
6. James Stewart (Yam)
7. Kevin Windham (Hon)
8. Brett Metcalfe (Suz)
9. Justin Brayton (Hon)
10. Kyle Chisholm (Kaw)
11. Broc Tickle (Kaw)
12. Nick Wey (Kaw)
13. Kyle Partridge (Kaw)
14. Bobby Kiniry (Yam)
15. Davi Millsaps (Yam)
16. Matt Goerke (Suz)
17. Gavin Faith (Hon)
18. Nico Izzi (Yam)
19. Jeff Alessi (Suz)
20. Chad Reed (Hon)

East Lites flokkurinn:
1. Justin Barcia (Hon)
2. Darryn Durham (Kaw)
3. Ken Roczen (KTM)
4. Blake Wharton (Suz)
5. Phil Nicoletti (Hon)
6. Malcolm Stewart (KTM)
7. Jake Canada (Hon)
8. PJ Larsen (KTM)
9. Cole Thompson (Hon)
10. Lance Vincent (KTM)
11. Alex Martin (Hon)
12. Hunter Hewitt (Suz)
13. Austin Politelli (Hon)
14. Justin Bogle (Hon)
15. Blake Baggett (Kaw)
16. Les Smith (KTM)
17. Angelo Pellegrini (Suz)
18. Sean Hackley (KTM)
19. Matt Lemoine (Kaw)
20. Kyle Cunningham (Yam)

Published in Supercross

Í nótt fór fram sjötta umferðin í AMA Supercrossin og fór keppnin fram í San Diego.  San Diego er þekkt fyrir þrennt, það kemur alltaf eitthvað óvænt upp á og hafa margir ökumenn lent illa í því í San Diego.  Má þar nefna að fyrsta og eina banaslysið í AMA Supercrossinu átti sér stað í San Diego á sínum tíma.  Í öðru lagi einstaka sigurgöngu Chad Reed í San Diego síðan árið 2003, eða frá því að hann hóf keppni í stóra flokknum, en síðan þá er hann með um 75% vinningshlutfall og hefur unnið sex af síðustu átta keppnum sem er einstakt.  Í þriðja lagi að þá er það andrúmsloftið á keppninni sem hreinlega er þannig hlaðið að það er eins og áhorfendur og keppendur vita að eitthvað á eftir að gerast sem mun setja sitt mark á keppnistímabilið. Brautin var mjög erfið að því leiti til að vúppsarnir voru mjög stórar og erfiðar og áttu eftir að hafa mikil áhrif á keppendur.  Sérstaklega voru minni hjólin að ströggla í þessum hluta en ökumenn í stóra flokknum áttu líka erfiðan dag.  Ef þú ert ekki búinn að sjá keppnina og vilt ekki vita úrslit, að þá getur þó horft á keppnina hér fyrir neðan og síðan lesið um framhaldið fyrir neðan.

Lites flokkurinn:  Fyrir mótið leiddi Eli Tomac stigakeppnina og í raun var þetta orðið þannig að það var nóg fyrir Eli Tomac að skila sér í efstu fimm sætin í þeim keppnum sem eftir voru, sem voru þrjár fyrir þessa, að þá hefði hann staðið uppi sem West Lites sigurvegari.  Helsti keppinautur hans að mati spekúlanta, Dean Wilson, hafði ekki náð að standa uppi í hárinu á Eli Tomac og hafði aðeins unnið einu sinni á meðan Eli Tomac var búinn að landa þremur sigrum.  En sigur er ekki alltaf ávísun á titil og getur Tim Ferry vitnað um það en hann vann Lites meistaratitil án þess að nokkrum sinnum að sigra keppni það ár.  Já, stöðugleiki og það að vera meðal þeirra efstu í hverri einustu keppni gerði það að verkum að Tim Ferry stóð uppi sem sigurvegari.  Í fyrri undanriðlinum að þá var það Dean Wilson náði bestri ræsingu og skildi hina eftir í tómu tjóni.  Marvin Musquin varð í öðru sæti en átti í miklum erfiðleikum í vúppsunum og þriðji varð Matt Moss á KTM sem var að keyra feykivel.  Í síðari riðlinum að þá var það Cole Seely sem kláraði með stæl en Eli Tomac lenti í því að fara niður eftir fyrstu beygju ásamt fleiri ökumönnum.  Sá maður þá að það voru framúraksturlínur í brautinni þegar hann vann sig frá síðasta sæti í það áttunda.  Í öðru sæti varð Travis Baker liðsfélagi Cole Seely og í þriðja sæti varð Vince Friese.  Í aðalkeppninni var það Vince Friese sem náði bestri ræsingu en Dean Wilson var ekki lengi að ná fram úr honum.  Eli Tomac var í kringum fimmta til sjötta sæti eftir fyrstu beygju og það var ljóst að hann ætlaði sér ekkert annað en sigur og hóf að sækja fram af miklum krafti.  Yfirkeyrði hann brautina á kafla, yfirstökk og meira til.  Var ljóst að hann ætlaði sér að ná Dean Wilson "no matter what".  En ökumenn í aðalkeppninni fóru að hrynja niður og voru vúppsarnir mjög erfiðir þeim.  Og það voru einmitt þessir blessuðu vúppsar sem áttu eftir að vera úrslitavaldur kvöldsins og hugsanlega helsti áhrifavaldur á tímabilið þegar Eli Tomac fór ill fram fyrri sig í vúppsunum og fékk hjólið á sig.  Meiddist hann nokkuð á olnboga og varð að hætta keppni.  Dean Wilson var því á auðum sjó og leit allt í einu út fyrir að ef hann hreinlega kláraði að þá myndi hann allt í einu leiða stigakeppnina sem og hann gerði.  Já, það er skammt stórra högga á milli og enn og aftur var það brautin í San Diego sem átti eftir að vera áhrifavaldur.  Cole Seely varð annar og Matt Moss á JDR KTM náði sínum bestu úrslitum síðan hann hóf keppni í AMA Supercrossin og endaði þriðji.  En Matt Moss er frá Ástralíu eins og Chad nokkur Reed.  Dean Wilson leiðir nú stigakeppnina með tveimur stigum á Eli Tomac og nú er það spurning hversu alvarleg meiðslin eru hjá Eli Tomac.  Eli Tomac getur þakkað fyrir að West Lites flokkurinn er að fara í frí og mun ekki hefja keppni aftur fyrr en í Seatle sem er fimmtánda umferðin.  Cole Seely sem er í þriðja sæti á líka möguleika á titli þó svo að draumur hans sé fjarlægari en Dean Wilson eða Eli Tomac.

Opni flokkurinn:  Það voru ekkert síður ökumenn í þessum flokki sem áttu í erfiðleikum í vúppsunum og virtist t.d. Ryan Dungey ekki ná að taka þá mjög sannfærandi.  Einnig virtist vera nokkur munur á uppsetningum á hjólinu hjá liðsfélögunum Davi Millsaps og James Stewart.  Davi Millsaps fór mjög vel í gegnum vúppsana á meðan James Stewart var meira villtur.  Í fyrri undanriðlinum var það Ryan Villopoto sem sigraði en Davi Millsaps varð annar og átti mjög gott "run" í undanriðlinum.  Brett Metcalfe varð þriðji.  Í síðari riðlinum var það Chad Reed sem sigraði eftir að riðilinn hafði verið rauðflaggaður og það þurfti að byrja aftur.  James Stewart átti góða ræsinu áður en það var Mike Alessi sem tóka fram úr honum og lokaði á hann.  Var ótrúlegt að sjá James Stewart ströggla við að taka fram úr Mike Alessi í tvo hringi áður en það var rauð flaggað og endurræst.  James Stewart varð annar í síðari riðlinum á eftir Chad Reed og Ryan Dungey varð þriðji.  Í aðalkeppninni varð það Brett Metcalfe sem var með bestu ræsingu en Jake Weimer varð annar og á hælum hans kom Ryan Villopoto.  Fljótlega varð það þó Ryan Villopoto sem náði forstynni á meðan bæði Chad Reed og James Stewart þurfi að koma að aftan og vinna sig upp.  Var ég búinn að segja að vúppsarnir voru erfiðir, ef ekki að þá ætla ég að endurtaka það.  Fljótlega var Chad Reed komin í annað sætið og James Stewart var lengur að vinna sig upp í þriðja sætið og var farið að hitna í höllinni.  Jake Weimer fór tvisvar á granirnar og þurfti að hætta keppni eftir að hafa verið annar.  "Guess what", James Stewart datt...  Ó, já, það virðist ekki af þessum ökumanni að ganga og hann einfaldlega virðist ekki kunna að keyra ekki á ystu nöf.  Flestir dást að því en það hefur líka skapað þann hóp fólks sem gagnrýnir hann hvað mest og í sumum tilfellum á hann það fyllilega skilið.  En það verður samt ekki af honum tekið að hann virðist vera með þetta í blóðinu að "I will dy trying".  En það var ekki bara James Stewart sem fór á rassgatið í vúppsunum því Kevin Windham fór á nákvæmlega sama stað.  Já, þeir voru mjög trikkí þessir vúppsar.  Þá var baráttan á milli Chad Reed og Ryan Villopoto og miðað við vinningshlutafall Chad Reed að þá var ljóst að Ryan Villopoto þurfti að hafa fyrir hlutunum og það koma á daginn.  Chad Reed náði Ryan Villopoto og náði að fara fram úr honum á næst síðasta hring.  Ryan Villopoto var hraðari í beygjum en Chad Reed var með mjög góðan hraða í gegnum vúppsana.  Ryan Villpoto náði svo að skella sér innan á Chad Reed og ná fram úr honum nokkrum beygjum síðar og náði að halda því til loka.  Var þetta æsispennandi keppni og sagði Chad Reed á eftir að Ryan Villpoto hefði einfaldlega haft meiri sigurvilja og verið tilbúinn að leggja meira undir í því skyni.  Chad Reed varð því annar og lækkaði það vinningshlutfall hans aðeins og Ryan Dungey getur þakkað fyrir að bæði James Stewart og Kevin Windham féllu og náði að landa þriðja sætinu.  Er þetta í alla vega annað ef ekki þriðja sinn sem Ryan Dungey hagnast af falli James Stewart og endar á palli fyrir vikið.

Hvað er málið með James Stewart?  Margir hafa velt ýmsu fyrir sér og margir hafa álitið að þetta sé hjólinu að kenna og að hann hafi ekki verið eins og hann á sér að vera eftir að hann fór frá Kawasaki.  Það er mikið til í því að drengurinn er ekki eins og hann var þegar hann var á Kawasaki en hann átti ekki mikið úr að velja á þeim tíma því Kawasaki hætti hreinlega að tala við hann og því fór hann annað.  Nákvæmlega það sama og gerðist með brotthvarf Ricky Charmichael á sínum tíma frá Kawasaki og verður líklegast sama samskipta mynstrið þegar Kawasaki lætur Ryan Villopoto fara og veðjar á ökumanna eins og t.d. Adam Cianciarulo sem arftaka hans.  En er það hjólið sem er að valda þessu.  Nokkrir hafa lagst yfir þetta og David Vuillemin er einn af þeim.  Hann telur að það sé fyrst og fremst uppsetninginn á hjólinu sem veldur því að James Stewart sé að gera þessi mistök og það hafi ekkert með hjólið að gera, fyrir utan að James Stewart er að eldast.  Í samanburði sínum tekur hann liðsfélaga James Stewart hann Davi Millsaps og segir að hann hafi ekki átt í neinum vandræðum í vúppsunum og í raun virkaði hjólið hans "rock solid" í gegnum vúppsana.  David Vuillemin er á því að James Stewart keyri með of stífa fjöðrun, sem með of "snappi" afl í hjólinu sem erfitt er að stýra í vúppsunum og ef þú gerir mistök að þá refsi það "big time.  Hvernig stendur á því að Yamaha YZ450F hefur landað titli í ástralska supercrossinu og motocrossi en virkar ekki í henni Ameríku?  Þetta fer ekki saman og ef við lítum til Evrópu að þá hefur Steven Frossard afsannað það ásamt Gautier Paulin og David Philippaerts að það sé hægt að vinna á þessu hjóli oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.  Þannig að það er skoðun David Vuillemin að þetta sé uppsetning en ekki hjólið.  Til samanburðar tekur hann ökumenn Ben Lamay sem hafi nánast verið á "stock" hjóli og samt lítið mun betur út en James Stewart í vúppsunum.  Gautier Paulin gerði sér lítið fyrir og sigraði á þessu hjóli í MXON 2011 og var þá að keppa við "the best of the best".  Hægt er að lesa pistilinn hans David Vuillemin með að smella hér.  Sigurvegarinn í Le Tougeut þolaksturskeppninni sem fór fram um daginn var t.d. á YZ450F.  Annað sem einhverjir hafa bent á að eftir því sem menn verða eldri, þarf að mýkja hlutina og það er hlutur sem James Stewart virðist hafa láðst að gera.  Sjáið t.d. Kevin Windham.  Hjólið hans er orðin meira "smooth" en áður þó svo að hann vilji hafa ákveðið afl að þá vill hann ekki að það refsi manni eða rífi af ökumanninum handleggina.  Chad Reed er einnig þekktur fyrir að vilja ákveðið en mjúka aflkúrfu.  

Published in Supercross

 

AMA Supercross hefur farið vel af stað það sem af er og lítur ekki út fyrir að þar verði neitt slegið af á næstunni.  Eftir fjórar umferðir höfum við séð fjóra mismunandi sigurvegara og ómögulegt á þessu stigi að sjá hver það verður sem er líklegastur til að taka titilinn.  Ricky Charmichael segir að línur fara ekki að skýrast fyrr en eftir níundu umferð sem verður í Daytona eins og venjulega.  Þá fyrst förum við að sjá hverjir koma til greina.  En ef hugsað er til baka og þá stöðu sem t.d. Ryan Dungey lenti í fyrra, að þá hefði Ryan Dungey staðið uppi sem sigurvegari eftir tímabilið ef hann hefði ekki misst keðjuna í einni umferðinni.  Já, ótrúlegt en satt, að aðilinn sem einungis vann eitt mót í fyrra hefði að öllum líkindum staðið uppi sem sigurvegari.  Það sama var upp á teningnum í AMA Outdoors, ef hjólið hans Ryan Dungey hefði ekki bilað á síðustu metrunum í annari umferð að þá hefði hann að öllum líkindum staðið upp sem sigurvegari.  Þannig að það má með sanni segja að árið 2011 var ekki árið hans Ryan Dungey til að verja meistaratitilinn sinn og það hreinlega átti ekki að verða.  En víkjum aftur að supercrossinu.  Ef þú ert ekki búinn að horfa á það, að þá geturðu niðurhjalað opna flokknum hér og Lites flokknum hér.  Einnig geturðu svo séð aðalkeppnina ásamt undanriðlum í heilu lagi í sitt hvorum flokknum hér fyrir neðan.

Lites flokkurinn:  Ég ætla ekki að ræða um undanriðlana heldur fara beint í úrslitinn en Eli Tomac gerði sér lítið fyrir og sigraði í þriðja sinn í ár og virðist vera að klára dæmið.  Miðað við akstur á kappanum að þá virðist Dean Wilson ekki eiga nein svör við honum í dag sem var áltinn hans helsti keppninautur í ár.  Marvin Musquin endaði í þriðja sæti og kemur það mér ekki á óvart þó svo að einhverjir þarna vestanhafs hafa tekið það fram sem hið óvænta í supercrossinu í ár.  Marvin Musquin er feykigóður ökumaður og hefur verið dáðst að ökulagi hans hjá bæði Jeff Emig og Ricky Charmichael.  Það sem hefur komið mér á óvart með Marvin Musquin er að hann hefur verið óhræddur við að "block-passa" menn þegar á hefur reynt en margir evrópskir ökumenn hafa átt við það vandamál að stríða þegar þeir koma vestur yfir hafið, er að þeir eru ekki nógu agressívir og hafa amerískir ökumenn talað um að það sé nóg að fara utan í þá einu sinni til tvisvar sinnum og þá fari þeir skælandi heim.  Það á ekki við í tilfelli Marvin Musquin.  Cole Seely endaði svo annar og leiddi hann lengi vel en datt í keppninni og missti þá Eli Tomac framúr sér.  Sá ökumaður sem ég hef orðið fyrir hvað mestum vonbrigðum með í West Lites flokknum er Ryan Sipes.  Þessi piltur hefur hvað eftir annað verið með hröðustu hringi á æfingum og í tímatökunni að þá var það hann ásamt liðsfélaga sínum Nico Izzi sem voru töluvert hraðari en næsti maður.  Var Eli Tomac að ströggla í tímatökunni og virtist ekki hafa sama flæði og Ryan Sipes og Nico Izzi.  Í undanriðlinum að þá var Ryan Sipes alveg við það að sigra sinn riðil þar sem hann var mun hraðari en Dean Wilson en allt kom fyrir ekki í aðalkeppninni og enn og aftur er maður að horfa upp á þennan hæfileikaríka ökumann enda mun aftar en maður getur talið eðlilegt.  Martin Davalos er líka algjörlega sér kapituli útaf fyrir sig og hefur hreinlega engu skilað síðustu þrjú árin fyrir utan góðum úrslitum í undanriðlum en er algjörlega mislagðar hendur þegar kemur að aðalkeppninni og telst það eitt og sér til afreka hjá honum ef hann nær að klára keppni.  Fyrir utan þetta, að þá er ég farinn að verða hrifnari af reglunum í FIM þar sem ökumaður verður að fara upp í MX1 eftir að hann er oðin visst gamall.  Það er ekki eðlilegt hvað margir af þessum ökumönnum hafa hreinlega skotið rótum á 250cc hjóli og hreinlega standa því fyrir þrifum að ungir ökumenn fái tækifæri.

450 flokkurinn:  Það verður ekki annað sagt en að James Stewart er sá aðili sem fólk fylgist með og nær hann alltaf athygli manns hvort sem maður er hrifin af honum eða ekki.  Línurnar sem pilturinn var með voru hreint út sagt ótrúlegar í undanriðlinum en það sem gerir James Stewart svona spennandi ökumann er jafnframt hans helsti löstur.  Hann gerir hluti sem enginn annar gerir og gerði hann slíkt í undanriðlinum að þessu sinni.  Það mistókst, eins og svo oft áður, og fór hann mjög illa á hausinn og varð að hætta keppni og stóla á að fara í LCQ.  James Stewart laskaðist nokkuð á öxl við fallið og rifbeinsbrotnaði.  Því verður ekki annað sagt en að það eitt að ljúka keppni þann dag sé afrek út af fyrir sig, hef rifbeinsbrotnað á hjóli og það er ekki auðvelt að hjóla þannig, hvað þá að enda þar sem hann endaði eftir daginn en hann endaði í öðru sæti.  Ryan Villopoto er fyrsti ökumaðurinn í 450 flokknum til að landa öðrum sigrinum í supercrossinu í ár.  Sagan segir að sá aðili sem er fyrstur að landa öðrum sigrinum í supercrossinu, hefur staðið uppi sem sigurvegari eftir tímabilið í hátt í 70% tilfella.  Þannig að tölfræðin er með Ryan Villopoto í þessum efnum.  Chad Reed endaði þriðji og var hann að berjast við magaveiki í keppninni.  Kappinn er ótrúlega seigur og skyldi enginn afskrifa hann.  Ryan Dungey hefur ekki náð að fylga eftir sigri sínum og hefur verið á eftir þeim þremur sem ég nefni hér að framan, en munurinn á honum og t.d. Ryan Villpoto eða James Stewart er að hann gerir afar fá mistök og klárar alltaf.  Ja, ef frá skyldi telja árið 2011 þegar keðjan fór og þegar hjólið bilaði á síðasta hring í Hangtown í AMA Outdoors.  Þessi stöðugleiki Ryan Dungey gæti skilað honum sigri þegar upp er staðið og skyldi enginn vanmeta eða afskrifa hann að svo stöddu fyrir utan að hann gæti allt í einu tekið upp á því að sigra eina til tvær keppnir í viðbót í það minnsta.  Ryan Villopoto leiðir núg stigakeppnina en er einungis 3 stigum á undan Chad Reed og 5 stigum á undan Ryan Dungey.  James Stewart er langt frá því að vera úr leik þrátt fyrir að hafa ekki sigrað og á góðan möguleika að sækja á hina með t.d. tveimur sigrum í viðbót á næstunni.

Það var þó eitt atriði sem skyggði á þessa keppni, en það var að faðir James Stewart varð fyrir aðkasti áhorfenda og hræktu nokkrir þeirra á hann.  Ekki hefur mikið verið fjallað um það í helstu vefmiðlum en þeim mun skrifað um það á t.d. Twitter og sitt sýnist hverjum.  Svo virðist vera að þeir sem hata hann, hati hann einfaldlega af því að hann er svartur og eru þeir svo blindaðir af hatri að þeir telja að það eigi hreinlega að koma illa fram við þá feðga.  Steve Cox, sem skrifar fyrir RacerXonline tók þetta upp á sína arma og skoðun hans er að þetta sé til háborinnar skammar, sem ég er honum hjartanlega sammála, og eigi hreinlega að setja þessa einstaklinga í bann.  Enginn annar ökumaður verður fyrir því aðkasti sem James Stewart verður fyrir og virðist enginn önnur skýring liggja að því baki nema sú að hann er svartur í hvítra manna sporti.  Enginn annar ökumaður á sér slíkan haturshóp að þeir hreinlega fagna því og óska þess að hann slasist illa út í braut.  Ekki var það gert við Ricky Charmichael sem þó komst í nöp við aðdáendur sportsins á sínum tíma en náði að vinna þá aftur á sitt band.  Ekki hefur verið púað á Chad Reed í gegnum tíðina þó svo að hann hefur fyrst núna verið að ná verulegum vinsældum.  Þessar hvatir áhorfenda eru sportinu til skammar og þeim sem síkt gjöra til mikillar minnkunar.  James Stewart er einhver mest spennandi ökumaður sem komið hefur fram í sportinu lengi og ég leyfi mér að fullyrða að hann hefur gert aðra ökumenn betri eins og t.d. Ricky Charmichael, Ryan Villopoto og Chad Reed því þeir hafa þurft að "step up their game" vegna hæfileika James Stewart.  Það er sama hvað skoðun þú kannt að hafa á ökumanni en enginn á skilið slíka framkomu.

Published in Supercross

Fjórða umferðin í AMA Supercross fór fram í Oakland um helgina og var fyrir margar sakir sérstök.  Fyrir það fyrst að þá var hún sérstök þar sem James Stewart hafði ekki ennþá náð að landa sigri í mótaröðinni og hefur það þótt óhugsandi fyrir tímabilið að hann myndi vera að ströggla við að lenda á palli.  Að öðru leyti kom sú frétt illa við marga að mekkinn hans James Stewart skyldi hafa látist  þegar bifreið keyrði á hann þegar hann var að hjálpa konu sem var stopp út í vegarkannti vegna bensínleysi en sú sem keyrði á hann var í farsímanum að senda sms og missti stjórn á bílnum.  Já, akstur er dauðans alvara og að senda SMS á meðan verið er að keyra á engan vegin við.  Þar með lauk viðburðaríkri en stuttri ævi Mark "Tex" Adams og nokkuð ljóst að lið James Stewart og Davi Millsaps nokkuð laskað sökum skyndilegs fráfalls Mark.  Vonandi verður þessi viðburður til að vekja fólk upp með að þú þarft á fullri athygli að halda þegar þú keyrir og þú ert EKKI að senda SMS á meðan þú ert undir stýri...   

Ef þú ert ekki búinn að sjá keppnina og vilt sjá hana sjálfur, að þá getur þó sótt torrent af stóra flokknum hér og lites flokknum hér.  Hér fyrir neðan geturðu svo horft á keppnina áður en þú lest eitthvað meir en Lites flokkurinn var að koma á netið.

Lites flokkurinn:  Það gekki ekki allt sem skyldi upp hjá Pro Circuit Kawasaki liði Mitch Payton og í fyrsta sinn í langan tíma sá ég liði ströggla.  Brautin þótti nokkuð tæknileg og tjáði Eli Tomac sig um að þetta hefði verið ein tæknilegasta braut sem hann hefði hjólað í það sem af væri núverandi tímabili.  Í fyrri undanriðlinum að þá datt Tyle Rattray nokkuð illa og varð að hætta keppni.  Brákaði hann hryggjalið í hálsi og óvist með framhaldið á næstunni.  En Tyle Rattray, sem er liðsfélagið Dean Wilson, var með efstu mönnum í stigakeppninni.  Það var þó liðsfélagi hans Dean Wilson sem sigraði í fyrri undanriðlinum, Zach Osborne varð annar og Martin Davalos varð þriðji.  Í síðari riðlinum varð það Cole Seely sem sigraði eftir harða baráttu við Eli Tomac sem varð annar og Billy Laninovich sem varð þriðiji.  Í aðalkeppninni að þá var það Martin Davalos sem enn og aftur var með bestu ræsinguna en Eli Tomac, Cole Seely og Dean Wilson voru ekki langt undan.  Marvin Musquin sem var búinn að vera með hröðustu tíma á æfingum var með lélega ræsingu og var rétt um miðjan hóp.  Dean Wilson gerði mistök á sama stað og Tyle Rattray datt og fór út úr brautinni með látum.  Sem betur fer slasaðist hann ekki og gat haldið áfram en hann var orðin síðastur.  Fljótlega eftir þetta að þá lenti Cole Seely í að afturdekkið hans fór undan honum eftir að hann hefði verið of graður á gjöfinni og datt hann líka.  Eli Tomac átti líka sín "moment" og var í raun heppinn að falla ekki.  Martin Davalos hélt áfram hefðbundnum hætti og gerði sín klassísku mistök í aðalkeppninni og missti við það Eli Tomac framúr sér sem byrjaði að byggja upp forskot á keppinauta sína.  Zach Osborne var komin upp í annað sætið þegar hér var komið við sögu en var í harðri baráttu við Jasaon Anderson og Marvin Msuquin sem var að sækja grimmt upp með fanta akstri.  Marvin Musquin skellti sér innan á Jason Anderson sem við það fipaðist og féll við og var allt í einu komin hörku baráttu um annað sætið.  Marvin Musquin var ekki hættur og eftir mikið harðfylgi náði hann framúr Zach Osborne sem varð að sætta sig við þriðja sætið.  Er þetta í annað sinn sem Zach Osborne gefur eftir á loka metrunum og gefur eftir annað sætið.  Sem sagt Eli Tomac sigraði, Marvin Musqui varð annar og Zach Osborne varð þriðji.  Það voru ansi blendnar tilfinningar hjá Zach Osborne í viðtalinu eftir keppnina því hann þarf að yfirgefa sviðið og halda á leið til Englands þar sem hann mun halda áfram undirbúningi sínum í FIM mótaröðinni, en hann fékk eingöngu leyfi til að taka þátt í fjórum supercross keppnum.  Eli Tomac leiðir nú stigakeppnina en Dean Wilson er annar.  Zach Osborne er í þriðja sæti en mun ekki far hærr að þessu sinni þar sem hann er á leið til Englands.

 

Í stóra flokknum að þá voru margir að spá í hvað fráfrall mekka James Stewart myndi hafa á liðið.  Í fyrri riðlinum að þá sigraði Ryan Dungey nokkuð sannfærandi en Kevin Windham var ekki langt frá.  Chad Reed var eitthvað að ströggla og varð að sætta sig við þriðja sætið.  Í síðari riðlinum varð æsispennandi barátta á milli James Stewart og Ryan Villopoto, en James Stewart hafði það fyrir rest og varð Ryan Villopoto að sætta sig við annað sætið.  Andrew Short hefur óðum verið að finna sig betur eftir að hann fór úr herbúðum KTM yfir á Honda og ljóst að hann á frekar heima á því hjóli en KTM en hann varð þriðji í þessum riðli.  Í aðalkeppninni að þá var það Chad Reed sem var með bestu ræsinguna en James Stewart og Ryan Willpoto ásamt Jake Weimer voru ekki langt undan.  Stungu þeir fyrst þrír nefndu hina af og byrjaði nú mikil barátta þeirra á milli þar sem allt virtist snúast um að bíða eftir að maðurinn fyrir framan gerði mistök.  Það var þegar komið var fram yfir miðja keppni að James Stewart náði að taka þrengri beygju en Chad Reed og náði þar með forystunni.  Við það byrjaði Ryan Villopoto að sækja á Chad Reed en gerði mistök og missti Chad Reed frá sér í smá tíma.  Byrjaði að sækja aftur en náði ekki að draga á Chad Reed og helst þessi pattstaða allt til loka.  Þar með sigraði James Stewart sitt fyrsta mót í ár og var það vel í ljósi fráfalls mekka hans í JGR liðinu.  Var þetta jafnframt fyrsti sigur hans fyrir nýja liðið JGR.  Chad Reed varð annar og var ekki sáttur við sjálfan sig að hafa misst James Stewart fram úr sér og talaði um að hann hefði keyrt eins og kerling.  Ryan Villopoto var hraðastur í tímatöku og var með hraðasta tíma í brautinni í sjálfri aðalkeppninni en það er eitt að vera hraðastur og annað að komast framúr.  Hann náði því ekki og virtist hann springa á limnum í blárestina og er þetta í fyrsta sinn sem ég sé hann í ár ekki sækja allan tímann.

 Chad Reed leiðir nú stigakepppnina ásamt Ryan Dungey.  Eru þeir báðir með 85 stig eftir fjórar umferðir.  Ryan Villopoto er ekki langt undan og er með 83 stig og James Stewart er í fjórða sæti með 73 stig.  Hér má sjá viðtöl við þá þrjá, þ.e. James Stewart, Chad Reed og Ryan Villopoto eftir keppnina.

Published in Supercross
Page 1 of 5