Ken DeDycker, sem keppti fyrir LS Honda á síðasta ári og hætti mjög snögglega hjá þeim fyrir örfáum dögum, hefur gengið til liðs við Red Bull KTM De Carli sem er lið Antonio Cairoli hjá KTM. Mun hann taka stöðu Max Nagl sem þarf að fara í aðra bakaðgerð vegna meiðsla sem hann hlaut síðasta haust og verður hann frá í það minnsta fyrstu fimm FIM keppnirnar og mun Ken DeDycker taka stöðu hans á meðan. Já, hlutirnir eru ekki lengi að gerast og verður forvitnilegt að sjá hann á KTM hjóli. Svo er bara spurning um framhaldið fyrir karlinn og spurning hvert hann mun halda þegar þessar fimm keppnir eru liðnar.
Ryan Dyngey verður EKKI með um helgina í AMA supercrossinu sem á að fara fram í Daytona. Þetta er reiðarslag fyrir Ryan Dungey sem er í öðru sæti til meistara og er um 13 stigum á eftir Ryan Villopoto. Ryan Dungey þurfti að fara í skurðaðgerð til að láta laga viðbein sem var brotið eftir að hann datt við æfingar í vikunni. Þar með eru bæði Ryan Dungey og Chad Reed, helstu keppinautar Ryan Villopoto úr leik og nú er bara James Stewart eftir af stóru nöfnunum og nú vona ég að kappinn nái þokkalegri ræsingu og þeir tveir muni þá keppa "head to head" það sem eftir lifir af þessum keppnistímabili.
Það er ljóst að Roger DeCoster ætlar að leika sama leikinn með Marvin Musquin eins og hann gerði með Ken Roczen í fyrra og mun Marvin Musquin taka þátt í 450 flokknum um næstu helgi og verður hann á 350cc hjólinu. Verður forvitnilegt að sjá hvernig honum vegnar á móti "stóru" strákunum en Ken Roczen átti ágætis innkomu í fyrra á 350 hjólinu og var að stríða stóru strákunum hressilega. Roger DeCoster trúir því að það henti ökumanni sem er vanur 250cc hjóli eða fara upp á 350cc hjól en ekki öfugt eins og sýndi sér á Andrew Short sem aldrei fann sig á 350 hjólinu.
Ken Roczen varð fyrir því óláni að handleggsbrotna rétt fyrir AMA Supercross tímabilið og varð hann því að færa sig úr West Lites yfir í East Lites sem hefur keppni í Atlanta að mig minnir. Í gær hjólaði hann í fyrsta sinn eftir brotið og er ekki annað að sjá en að hann sé bara alveg "þokkalegur", eins og sést hér fyrir neðan, og hann verði tilbúinn í slaginn í East Lites deildina þegar hún byrjar. Verður gaman að sjá hann keppa á móti "BamBam" eða Justin Barcia sem er núverandi meistari en Dean Wilson sem var helsti keppinautur Justin Barcia er núna í West Lites hlutanum. Justin Barcia er óhræddur við að láta aðra ökumenn finna fyrir sér, oft af óþörfu, og spurningin er hvernig munu þeir tveir koma til með að berjst, þ.e. Ken Roczen og Justin Barcia. Mig grunar að Justin Barcia eigi eftir að gera tilraun til að taka þýska undrabarnið niður við fyrsta tækifæri, svona til þess að sýna honum hver sé húsbóndinn á heimilinu.
Þá er Dakar rallýinu lokið og í raun lauk það á mánudaginn. Ég hef ekki flutt daglegar fréttir af Dakar rallýinu þó svo að ég hafi fylgst með því á hverjum degi og stafar það einfaldlega af tómri léti. Keppnin í ár var eins og ævinleg nokkuð hörð en fljótlega varð ljóst í hjólaflokknum að baráttan myndi standa á milli Cyril Despres sigurvegara frá árinu 2010 og Marc Coma sigurvegara frá í fyrra, báðir á KTM. Sá sem var næstur þeim var Helder Rodrigues á Yamaha sem endaði í þriðja sæti eins og í fyrra. Cyril Despres og Marc Coma voru í raun í algjörum sérflokki en lentu þó í ýmsu eins og aðrir keppendur. Helsti munurinn á þeim og öðrum var þó að þeir virtust villast minnst af þeim sem kepptu. Cyril Despre sigraði með um klukkutíma forskot og tæplega19 mínútna betur á Marc Coma og var heildartíminn hans 43:01:54. Marc Coma var á 44:21:31 og Helder Rodrigues sem varð þriðji var á 44:39:28. Hér fyrir neðan má sjá samantekt frá keppninni í ár, en ég naut þess að geta séð þetta á EuroSport á hverju kvöldi góða samantekt eftir hvern dag. Fyrir neðan má svo sjá atvikið þegar Cyril Despres endastakkst þegar jarðvegurinn var eitt drullusvað og í kjölfarið koma Helder Rodrigues sem gerði sömu mistök.
Þessi keppni er ekkert grín og því miður slasast fjöldinn allur af keppendum í þessari keppni og eru iðulega afföll í mótorhjólaflokknum. Fyrir neðan samantektina er svo krössin hjá Ike Klaumann sem meiddist mjög illa og þar fyrir neðan Quin Alxis Cody.
Hér er svaðalegt atvik þegar Ike Klaumann fer fram fyrir sig og varð úr leik. En ökumenn eru að keyra á rúmlega 100 km/klst og síðan fá þeir hjólið ofan á sig sem getur verið hátt í 150-160 kg. og er það ekkert grín. Það þarf ekki að taka fram að Ike Klaumann varð úr leik við þetta krass.
Hér má svo sjá þegar Quin Alexis Cody fór hressilega á granirnar og hefur þetta ekki verið gott. Hann þurfti að hætta keppni eins og gefur að skilja.
Hér má sjá myndband af Ryan Dungey og Marvin Musquin hjá KTM fyrir komandi keppni í Phoenix supercrossinu. Ryan Dungey vann það afrek fyrir KTM að koma því í fyrsta sinn á pall í AMA Supercrossinu í sögunni. Leit pilturinn ágætlega út og kom það honum mjög vel að vera með rafstart í hjólinu þegar hann datt eftir nokkra hringi í aðalkeppni. Má með vissu segja að hann hafi tapað mun færri sekúndum en ella ef hann hefði þurft að sparka hjólinu í gang upp á gamla mátann. Marvin Musquin leit einnig mjög vel út í sinni fyrstu supercrosskeppni í lites flokknum. Þessi piltur á eftir að lenda á palli eftir því sem sjálfsöryggið eykst og er hann farinn að fá smá athygli sem hann á hugsanlega skilið vegna meiðsla Ken Roczen.
Stefan Everst upplýsti það í viðtali núna um daginn að margfaldur heimsmeistari í motocrossi og sigurvegari síðust þriggja ára Antonio Cairoli yrði áfram á KTM SX350-F hjólinu og færi ekki yfir á 450 eins og Ryan Dungey hefur valið að keyra í AMA mótaröðinni. Í viðtali sem má sjá hér fyrir neðan þar sem rennt er yfir síðasta tímabil hjá Tony Cairoli að þá talar hann um að hjólið hafi verið bætt mikið síðan það kom fyrst á markað og miðað við þróunina á því, að þá búist hann við því að það verði nánast fullkomið fyrir árið 2012.
Nú í dag kynnti KTM svo á markað nýtt KTM SX450-F factory hjól sem er samskonar og Ryan Dungey keyrir á í AMA mótaröðinni og er það fyrsta 450 hjólið frá KTM í motocrosslínunni sem er með beinni innspýtingu. Einnig hefur hjólið fengið nýja grind og plastið hefur fengið smá yfirhalningu.
Antonio Cairoli er eitthvað tvístígandi yfir hvort hann eigi að halda áfram keppni á 350 hjólinu frá KTM eða fara yfir á nýjasta nýtt, þ.e. 450 hjólið sem er með beinni innspýtingu og er það hjól sem Ryan Dungey er að nota núna. Tony Cairoli hefur unnið tvo heimsmeistaratitla á 350 hjólinu þó svo að margir vilja meina að hann hafi haft meistaraheppnina með sér í ár og er ég einn af þeim, þó svo að ég sé mikill aðdáandi Tony Cairoli. Heppnin fólst í því að helstu keppinautar hans féllu nánast allir úr leik vegna meiðsla og má þar fremst nefna Clément Desalle, Steven Frossard, David Phillippaerts o.fl. Miðað við það sem ég sá framan af, að þá virtist Clément Desalle vera sterkastur og myndi í það minnsta veit Tony Cairoli verðuga keppni í ár en því miður datt hann út. Steven Frossard sýndi góða takta en átti við meiðsli að stríða frá miðju tímabili sem höfðu áhrif og einnig slasaði Tony Cairoli sig lítillega í byrjun. Ef Tony Cairoli velur 450 hjólið, að þá geri ég ráð fyrir því að við eigum eftir að sjá það hverfa af sjónarsviðinu í MX1 flokknum sem keppnishjól þó svo að það haldi hugsanlega áfram að vera vinsælt hjól hjá þeim sem vilja meira en 250 en eru ekki alveg tilbúnir til að berjst við 450 hjól. Max Nagl mun að öllum líkindum fara yfir á 450 hjól fyrir komandi tímabil.
Það er komin smá fiðringur hjá mér fyrir fyrstu keppni fyrir 2012 tímabilið í supercrossinu sem hefst 6 janúar og fer fram á Anaheim leikvanginum í Los Angeles. Öll lið eru á fullu að ganga frá sínum málum og að klára undirbúning og er það ennþá ótrúlegt að heyra að sum lið eru ekki ennþá búinn að klára að fullu liðaskipan fyrir komandi tímabil. Eitt lið er þó með allt sitt á hreinu og er það lið Red Bull KTM í henni Ameríku með þá Marvin Musquin og Ken Roczen innan borðs. Hlakka ég til að sjá þessa pilta en hér má sjá stutt myndband af Ken Roczen á æfingu fyrir stuttu og lítur hann vel út eins og ævinlega.
Hér er nokkuð "cool" myndband af nýja KTM 350 Freeride hjólinu. Þetta er nýtt "concept" sem KTM er að kynna núna og munurinn á þessu hjóli og t.d. öðrum 350cc hjólum frá þeim er að þetta hjól er komin með grindina að hluta úr áli. Hver hin raunverulegi munur er á upplifun í akstri á móti t.d. 350 XC hjólinu veit ég ekki eða EXC, engu að síður töff myndband.