Um helgina fór fram á sama tíma önnur og þriðja umferð í íscrossi og urðu menn að fresta síðustu moto-inu á laugardaginn vegna veðurs sem var orðið nokkuð hvasst. Allt gekk þó upp og við ágætis aðstæður á sunnudag voru Íslandsmeistara í íscrossi krýndir. Skemmst er frá því að segja að Kári Jónsson endurtók leikinn í vetrardekkjaflokknum og er þar með Íslandsmeistari í íscrossi þriðja árið í röð. En það var ekki átakalaus og sigraði Guðbjartur Magnússon í annari umferð en Kári gerði það sem gera þurfti í síðustu umferðinni og náði að klára dæmið enn eina ferðina. Guðbjartur Magnússon kemur upp úr unglingaflokki í ár og hefur staðið sig hreint út sagt frábærlega. Munaði ekki nema níu stigum á milli hans og Kára. Í þriðja sæti var straum og gleðigjafinn Bjarki Sigurðsson en hann hefur ekki tekið mikið þátt í íscrossi síðustu ár en stóð sig feyki vel í ár. Í annari umferð sigraði Bjarki í tveimur af þemur moto-um en laut í ís sem kostaði hann sigurinn. Sama var upp á teningnum í síðustu umferðinni, en hann vann fyrstu tvö moto-in en ákvað svo að fá sér smá ís í síðustu umferðinni og varð því að sætta sig við bronsið á sunnudaginn. Hefði verið áhugaverð staða til Íslandsmeistara ef hann hefði klárað með fullt hús stiga í báðum umferðum og ljóst að þetta var ekki bara "walk in the park" fyrir hann Kára. Hægt er að sjá heildarúrslit í vetrardekkjaflokki með að smella hér.
Í opna flokknum var það Jón Ásgeir Þorláksson sem stóð uppi sem sigurvegari. Gamla brýnið Jón Kristján Jacobsen varð annar og munaði aðeins ellefu stigum á efsta manni og þeim sem varð í öðru sæti. Gunnlaugur Karlsson varð svo í þriðja sæti tveimur stigum á eftir Jóni í öðru sæti. Heildar úrslit í opna flokknum má lesa með að smella hér.
Í unglingaflokki sigraði Bjarni Hauksson og munaði fjórum stigum á honum og næsta manni sem var Victor Ingvi Jacobsen sem varð að sætta sig við annað sæti til Íslandsmeistara. Að vísu skilst mér að hugsanlega sé von á kæru vegna úrslita í þessum flokki en nánar verður fjallað um hana ef af henni verður. Á meðan tölum við um úrslitin eins og þau eru skráð á vef MSÍ. Í þriðja sæti var bróðir Bjarka, Einar Sigurðsson en hann hefur einnig ekki mikið verið í íscrossi en hefur greinlega ákveðið að vera með í öllum umferðum í ár. Mjög gott mál því þessir bræður eru mjög hæfileikaríkir. Heildarúrslit í unglingaflokknum má skoða með að smella hér.
Í kvennaflokknum að þá kláraði Signý Stefánsdóttir dæmið eftir mikla baráttu við Andreu Dögg Kjartansdóttir og munaði aðeins þremur stigum á milli þeirra. Er það minnsti munurinn í ár til Íslandsmeistara í flokkunum sem keppt var í. Ásdís Elva Kjartansdóttir varð svo þriðja en hún var ekki nógu nálægt þeim efstu til að velgja þeim undir uggum hvað stigin varðar. Heildarúrslit í þessum flokki má sjá með að smella hér.
Ekki var keppt til Íslandsmeistara í 85cc flokki vegna ónógrar þátttöku en það þarf í það minnsta fimm keppendur í fyrstu keppni til að hún telji til Íslandsmeistara. Það voru þó tveir keppendur kepptu á Mývatni um helgina. Það voru þeir Elmar Daði Fannarsson og Þorvaldur Daði Fannarsson sem skiptust á um að sigra sitt hvorn daginn.
Um helgina fer fram önnur umferðin í snjó-cross-country og einnig fer fram önnur og þriðja umferðin í íscrossi en það verður með því sniði að önnur umferðin fer fram á laugardag og þriðja umferðin fer fram á sunnudaginn. Rúmlega þrjátíu keppendur eru skráðir í íscrossið um helgina og efast ég ekki um að þetta eigi eftir að vera hin mesta skemmtu og er bara ágætis spá fyrir helgina þarna fyrir norðan. Því miður fór svo að MotoSport fjölskyldan ákvað að sitja heima þessa helgi og sleppa þátttöku í þessu annars mjög svo skemmtilega móti en það er ferming á næsta leiti hjá fjölskyldunni. Við óskum keppendum sem og áhorfendum að komandi keppni góðrar skemmtunar og eigum örugglega eftir að hugsa til þeirra með smá öfund. Það er alla vega á hreinu að Íslandsmeistararverða krýndir um helgina fyrir norðan og verður gaman að sjá hverjir verða ofan á í ár. Listann yfir keppendur í íscrossinu má sjá með að smella hér.
Loksins, loksins er birt langþráð keppnisdagatal MSÍ og má nálgast það á vef MSÍ. Það sem vekur fyrst og fremst athygli fyrir mína parta og þar sem áhugasvið mitt er meira tengt motocrossi en öðru er að það verða sex motocrosskeppnir í ár og stóra málið í mínum huga er Álfsnes er út. Verður það nokkur viðbrigði að ekki sé keppt í þessari braut en í staðin erum við komnir með sex keppnir og verður keppt í fyrsta sinn á Akranesi til íslandsmeistara og aftur verður haldið til Ólafsfjarðar þar sem keppt verður í sandi. Persónulega er ég hrifin af sandi en það eru hugsanlega aðrir sem eru ekki jafn hrifnir..:0) Hvað enduro varðar að þá hefur einnig verið fjölgað um eina keppni þar og verða þær því fjórar í ár en ekki þrjár. Verða tvær á suðvesturhorninu og tvær út á landi. Nýlundan hér er að í fyrsta sinn verður keppt til Íslandsmeistara í enduro á Egilstöðum. En hér er samantekt úr því helsta.
Motocross:
Enduro/CC:
Hér má svo sjá allt keppnisdagatalið fyrir neðan og einnig má vista það sem viðhengi hérna neðst í fréttinni.

Ég ætlaði nú að vera búinn að skrifa þennan stutta pistil en þar sem ég fór nánast beint erlendis eftir keppnina í íscrossinu að þá hafði ég ekki tíma fyrr en núna. En feðgarnir Victor Ingvi Jacobsen og Jón Kristján Jacobsen vöktu mikla athygli nyrðra í fyrstu umferð til Íslandsmeistara í íscrossi og óhætt er að segja að sjaldan virðist eplið falla langt frá eikinni. Jón K. Jacobsen, sem er gamalreyndur keppnismaður í nánast öllu sem viðkemur hjólamennsku, gerði sér lítið fyrir og sigraði í opna flokknum eftir nokkuð harða baráttu við Jón Ásgeir Þorláksson og Gunnlaug Karlsson. Sonur hans, Victor Ingvi Jacobsen, lét sitt ekki eftir liggja og hefur hreinlega fengið hæfileika pabba síns á ísnum í vöggugjöf því hann sigraði í unglingaflokki. Annað sem vakti athygli hjá þeim feðgum var að þeir aka báðir Yamaha tvígengishjólum og keyrir Jón K. á Yamaha YZ250 og sonurinn Victor I. á Yamaha YZ125. En flestir keppinautar þeirra eru að keyra á fjórgengishjólum sem hefur mun meira tog og fyrirgefa meira í akstri. Verður gaman að sjá hvað þeir gera í næstu keppni en það er alveg ljóst að þeir munu að öllum líkindum mæta með það eitt í huga og það er að sigra í ljósi góðs árangurs í fyrstu keppninni. Alltaf gaman að heyra í tvígengistuggum út í braut og er lyktin sem kemur að tvígengishjóli einstök í alla staði. Óska ég þeim feðgum til hamingju með glæstan árangur í fyrstu keppni og vona að þeim vegni jafn vel í næstu keppnum. Hér að ofan er Óliver Ö. Sverrisson með þeim feðgum á mynd en hann keyrir líka um á Yamaha tvígengishjóli, eða Yamaha YZ85. Hér fyrir neðan er svo myndir af þeim í keppni.
Fyrstu umferð og mjög skemmtilegri íscrosskeppni lauk á laugardaginn við frábærar aðstæður á Akureyri en fór keppnin fram á Leirutjörn. Það verður ekki að hægt að kvarta yfir neinu þarna fyrir norðan og vel að öllu staðið. Íscrosskeppnin er hluti af hátíðinni "Éljagangi" og verður væntanlega áfram. Ágætis skráning var fyrir keppnina og voru um fjörtíu keppendur skráðir til leiks en því miður var aðeins einn keppandi skráður í 85 flokkinn og var það Óliver Ö. Sverrisson. Í kvennaflokki stóð baráttan á milli Andreu D. Kjartansdóttir og Signý Stefánsdóttir og voru þær í nokkrum sérflokki. Andrea Dögg stóð uppi sem sigurvegari og má því helst þakka að hún gerði lítið af mistökum á meðan Signý þurfti að sætta sig við að falla tvisvar í tilraunum sínum til að ná og fara fram úr Andreu. Bryndís Einarsdóttir er líklegast sáttari við hlut sinn í þessari keppni en í fyrstu íscrosskeppninni í fyrra sem fór fram á Mývatni, en hún meiddist í þeirri keppni og hafði það veruleg áhrif á undirbúning hennar fyrir síðasta tímabil í FIM mótaröðinni erlendis. Bryndís varð í þriðja sæti í þetta skiptið. Í unglingaflokki að þá var það enginn annar en sonur "Lópó" eins og hann er kallaður sem kom sá og sigraði. En Victor I. Jacobsen hefur bætt sig mikið á síðustu tveimur árum og er farin að líkjast föður sínum æ meira í aksturslagi. Í öðru sæti varð Bjarni Hauksson og í þriðja sæti varð Einar Sigurðsson sem lét til leiðast og var með þar sem keppnin var fyrir norðan á Akureyri.
Í vetrardekkjaflokki var það Kári Jónsson sem stóð uppi sem sigurvegari og er þessi reynslubolti í íscrossinu vel að sigrinum komin. En það var svo sem ekki átakalaust og fékk hann óvænta keppni frá nýliðanum í vetrardekkjaflokki, Guðbjarti Magnússyni, sem gerði sér lítið fyrir og varð í öðru sæti og var eiginlega óheppinn að landa ekki sigri í öðru moto-i en þá leiddi hann lengi vel en missti svo Kára Jónsson fram úr sér þegar um þrír hringir voru eftir og síðan læddi Bjarki Sigurðsson sér fram fyrir hann á lokametrunum. Þó svo að Kári hafi klárað þetta, að þá var mikil keppni um næstu sæti á eftir og er ég ekki frá því að þar hafi verið einna harðasti keppnin dagsins þar sem fjórir til fimm ökumenn voru límdir við hvorn annan leitandi leiða til að taka fram úr hvorum öðrum eða bíðandi eftir mistökum hinna. Þetta voru þeir Bjarki Sigurðsson, Daði Erlingsson, Eyþór Reynisson, Haraldur Örn Harldsson og svo Guðbjartur Magnússon. En Guðbjartur Magnússon varð annar eftir daginn og keyrði feykilega vel. Bjarki Sigurðsson kom sjálfum sér á óvart og endaði þriðji eftir daginn en Eyþór Reynisson átti skemmtilega innkomu í sportið og verður ekki annað hægt að segja að árangur hans hafi vakið athygli þó svo að honum hafi hlekkst aðeins á í síðasta moto-inu. Daði Erlingsson varð að sætta sig við að horfa á eftir verðlaunasæti og einnir Haraldur Ö. Haraldsson sem keyrði mjög vel. Helsti munurinn á Kára og öðrum keppendum lá fyrst og fremst í bremsutækni að mínu mati. Kári náði að bremsa 2-3 metrum síðar en flestir þeir sem hann keppti við og það gaf honum það forskot sem skóp honum sigurinn þó svo að ég ætli ekki að gera lítið úr hæfileika hans til að taka beygjur á hvínandi ferð.
Í opna flokknum varð það enginn annar en gamla brýnið Jón K. Jacobsen eða "Lópó" eins og hann er kallaður. Var gaman að sjá hann stríða ungu strákunum og landa svo sigri eftir allt saman. Jón Á. Þorláksson varð annar og Gunnlaugur Karlsson eða bara Gulli varð í þriðja sæti. Var Gulli að snerta ísinn í fyrsta sinn í vetur og ég held meira að segja að hann hafi verið að hjóla í fyrsta sinn í fimm mánuði.
Ég tók nokkrar myndir úr keppninni og er hægt að sjá þær með að smella hér. Hér er svo smá myndband sem sýnir frá keppnishaldinu í FIM mótraröðinni í íscrossi eins og þeir halda það þarna í útlandinu og er gaman að sjá samanburðin.
Það eru frábærar aðstæður fyrir keppni hér fyrir norðan og ekki er hægt að kvarta yfir veðurspánni. Mikið er búið að vera um að vera á hátíðinni "Éljagangi" sem er haldin þessa helgi og nú er afstaðinn snjósleðaspyrnan sem varð að flytja upp í Hlíðarfjall. Hér er svo dagskráin fyrir íscrossið á morgun en mæting er kl.10 og hefst tímataka kl.11 og sjálf keppnin kl.12 en hægt er að sjá þetta hér fyrir neðan. Keppnin fer fram á Leirutjörn eins og í fyrra og laðar vonandi eitthvað af áhorfendum.

Það hefur aðeins ræst úr skráningu í fyrstu umferðina í íscrossi sem verður haldin á Akureyri laugardaginn 11 febrúar. En hætta varð við fyrstu umferðina sem átti að vera á suðvesturhorninu og því færist hún norður á Akureyri. Mikið er um að vera þessa helgi fyrir norðan og er hin árlega vetrarhátíð haldin þessa helgi en hún gengur undir nafninu "Éljagangur". Aðstæður fyrir norðan er ágætar og er víst rennifæri norður. Já, það eru ótrúleg hamskipti sem landið hefur gengið í gegnum á rétt rúmri viku því þá var allt á kafi í snjó og umferðin gekk vægast sagt illa. Hlakka til að fara heim í fjörðin og anda að mér bensínlykt. Hægt er að sjá listann yfir keppendur með að smella hér.
Tilkynning frá MSÍ

Af óviðráðanlegum orsökum hefur fyrstu umferðinni í íscrossi verið frestað um óákveðin tíma. Aðstæður eru mjög erfiðar til keppnishald og er með öllu ófært upp að Hafravatni og óvíst hvort þessar þrjár leiðir verði yfirhöfuð mokaðar fyrir helgi. Þar fyrir utan er ekki forsvaranlegt að láta fólk ferðast landshluta á milli við þessar aðstæður á meðan færðin er eins og hún er. MSÍ mun í samráði við klúbbana finna nýja dagsetningu við fyrsta hentugleika og mun sú skráning sem nú hefur átt sér stað gilda áfram. Þeir sem hafa athugasemdir við það er bent á að hafa samband við MSÍ. Vænta má upplýsinga um nýjan keppnisdag og hugsanlega nýjan keppnisstað fljótlega upp úr helgi. Verður upplýsingum um framhaldið komið í loftið um leið og það er ljóst hvert framhaldið verður, þ.e. nýr keppnisdagur og hugsanlega nýr keppnisstaður.