Skemmtilegt myndband sem sýnir fyrstu fimm mínútur hjá ökumanni í keppni í motocrossi og sýnir vel hvað ökumaður þarf að "díla" við. það er margur haldnir þeim ranghugmyndum að keppnishald á motocrosshjóli eða enduro sé skítlétt þar sem ökumenn geta einfaldlega setið á rassgatinu og snúa einfaldlega upp á bensíngjöf sem eykur hraðann á hjólinu þar sem mótorinn gerir allt sem ökumaðurinn vill. Þetta er eins fjarri lagi hvernig upplifun ökumanns er á hjólinu og hvað hann þarf að leggja á sig til að geta tekið beygjur, stökkið eða þess háttar æfingar til að geta klárað keppni. En þetta átta fáir sig á sem ekki hafa prófað að hjóla. Motocross er viðurkennt sem ein allra erfiðasta keppnisíþrótt sem nokkur getur tekið þátt í, þ.e. hjá sérfræðingum sem hafa eitthvað vit á íþróttum en ekki fótboltabullum sem varla komast hjálparlaust á salerni eftir bjórneyslu á leik. Allir sem hafa prófað viðurkenna það strax að þetta sé með því erfiðasta sem þeir hafa reynt og besta dæmið er aðilinn sem keppti í Þorláskhöfn í fyrra. En sá einstaklingur hafði sett sér þau markmið að taka þátt í öllum íþróttagreinum innan ÍSÍ af tilefni fimmtugsafmælis síns. Eftir að hafa tekið þátt í um fimmtíu íþróttagreinum er það álit hans að motocross er eitt það allra erfiðasta sem hann hefur nokkurn tímann prófað.
Jæja, best að hætta að dásama þetta allt saman og skiptir engu máli hversu miklum hallelúja pakka ég hengi á þetta sport ef enginn annar er sammála mér. Hér er svo myndbandið.